Tillögur að verndarsvæði í byggð

Heimilt er að sækja um styrki vegna kostnaðar við að útbúa greinargerð um mat á varðveislugildi sem fylgja skal tillögu að verndarsvæði í byggð, þ.m.t. vegna verkþátta sem liggja til grundvallar greinargerð, svo sem verkáætlunar, gagnasöfnunar, vinnslu kortagagna, myndefnis, fornleifaskráningar, húsakönnunar og samráðs við íbúa.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. reglur um úthlutun úr húsafriðunarsjóði, er að finna á heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2016. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.