Fréttir


10. jún. 2022

Viljayfirlýsing Minjastofnunar og Vatnajökulsþjóðgarðs

IMG_5323Þann 30. maí sl. undirrituðu forstöðumenn Minjastofnunar Íslands og Vatnajökulsþjóðgarðs viljayfirlýsingu um aukið samstarf stofnananna. Var yfirlýsingin undirrituð á góðviðrisdegi í Mývatnssveit, undir vökulu auga umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Tilgangur viljayfirlýsingarinnar er að efla samvinnu stofnananna tveggja með það að markmiði að auka upplýsingamiðlun um menningarminjar innan þjóðgarðsins og stuðla að vernd þeirra. Sérstök áhersla verður til að byrja með lögð á verkefni í Skaftafelli og Mývatnssveit.

Viljayfirlýsinguna má sjá hér.