Fara í efni

Feyneyjaskráin - Grunnur að verndarstarfi í 60 ár. Málþing 18. apríl

Á alþjóðadegi menningarminja 18. apríl verður haldið málþing í tilefni þess að í ár eru liðin 60 ár frá því að Feneyjaskráin var gefin út. Fjallað verður um gildi Feneyjarskrárinnar sem er leiðarljós í starfi ICOMOS. Með Feneyjaskránni voru settar fram alþjóðlegar viðmiðunarreglur um varðveislu og endurgerð minja og minjastaða.
Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands og hefst kl. 13:30.
 
Dagskrá
Guðný Gerður Gunnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar ICOMOS: Feneyjaskráin: Grunnur að verndarstarfi í 60 ár
Alberte Klysner Steffensen, arkitekt PhD, fræðimaður við Arkitektaskólann í Árósum: From Monuments to Living Heritage: Revisiting the Venice Charter in the Face of the Contemporary. (Erindið verður flutt á ensku gegnum fjarfundarbúnað).
Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands: Frá Feneyjum til Íslands
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt: Feneyjaskráin: Hagnýt viðmið eða fílabeinsturn?
 
Umræður verða að erindum loknum.
Gert er ráð fyrir að málþinginu ljúki um kl. 16.30.
Öll velkomin!