Fara í efni
Til baka í lista

Laugarneskirkja, Kirkjuteig

Laugarneskirkja
Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1945

Friðun

Friðuð af menntamálaráðherra 16. nóvember 2009, skv. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001. Friðunin nær til ytra borðs kirkjunnar.

Byggingarefni

Steinsteypt hús.
 

Guðjón Samúelsson arkitekt hófst handa við að teikna kirkjuna árið 1940 og var hún vígð 1949. Laugarneskirkja er einstaklega stílhrein og falleg bygging og markar upphafið í lokaskeiði Guðjóns sem arkitekts.  Undir áhrifum funkisstefnunnar sleppir hann öllu skrauti þó segja megi að hamrastíls hans gæti enn, því stöllunin í turni kirkjunnar minnir á stuðlaberg.