Fara í efni
Til baka í lista

Arnarnesviti, Arnarnes, Ísafjarðardjúpi

Friðlýst mannvirki

Byggingarár: 1921

Hönnuður: Thorvald Krabbe verkfræðingur.[2]

Breytingar: Veggir voru upphaflega málaðir hvítir og um þá miðja var rauð rönd og ljóshús og handrið voru rauð en veggir hafa verið málaðir gulir og stigi hvítur.[3]

Friðaður af menntamálaráðherra 1. desember 2003 samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðunin tekur til ytra og innra borðs vitans og ljóshúss, þar með eru talin linsa, linsuborð og lampi, járngrind ásamt klæðningu, stigar, handrið, hurð og gluggi. Friðunin tekur einnig til umhverfis vitans í 100 m radíus umhverfis hann, en að bjargbrún vestan hans og vegi að austan.[4]

 

Arnarnesviti er járngrindarhús með hallandi veggjum, 2,67 m að lengd og breidd að neðan en 1,95 m að ofan og hæð þeirra er 2,67 m. Á grindinni eru áttstrendar svalir og á þeim áttstrent ljóshús úr járni, 2,4 m á hæð. Vitinn stendur á steinsteyptri undirstöðu. Járnstigi er utanvert upp á svalirnar umhverfis ljóshúsið og um þær einfalt járnhandrið. Veggir eru klæddir bárujárni og horn borðaklædd og kverkborð er efst á veggjum undir svölum. Fyrir dyrum er okahurð og inn af þeim lítið anddyri með okahurð. Einnar rúðu gluggi er yfir dyrum.

Járngrindin er klædd lóðréttum plægðum borðum undir bárujárnsklæðningu og gólf steinsteypt og múrhúðað. Járnstigi er upp í ljóshúsið og stigagati lokað með járnhlera. Járngólf er í ljóshúsi. Vitinn er málaður að innan. Í ljóshúsinu er 210° díoptrísk 375 mm linsa með 110 volta 1000 watta aðalperu og 24 volta 150 watta varaperu.


[1]Thorvald Krabbe. Yfirlit yfir helstu mannvirki á Íslandi 1921, 57. Tímarit verkfræðingafélags Íslands 7. árg. 4. hefti (1922).

[2]Sigl. Ísl. Teikning A26. Vitar á Reykjanesi, Öndverðarnesi og Langanesi.

[3]Vitar á Íslandi. Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson. Járngrindarvitar 1910-1927, 186-188; Arnarnesviti, 275-277. Kópavogur 2002.

[4]Húsafriðunarnefnd. Skjalasafn. Friðunarskjal Arnarnesvita.