Fara í efni
Til baka í lista

Auðkúlukirkja, Svínavatnshreppur, A-Húnavatnssýslu

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1894

Hönnuður: Þorsteinn Sigurðsson forsmiður.

Saga

Á Auðkúlu hefur verið kirkja frá fyrstu tíð kristni á Íslandi. Kirkjan var helguð Jóhannesi skírara í kaþólskum sið. Elsti varðveitti máldagi kirkjunnar er í máldagasafni Auðunar rauða Hólabiskups frá um 1318. Núverandi kirkja var reist í stað torfkirkju sem var byggð 1835. Nýja kirkjan er ekki á sama stað heldur var hún flutt úr kirkjugarðinum og staðsett í túninu fyrir sunnan og austan bæinn. Viðir gömlu kirkjunnar voru nær allir óskemmdir og voru nær allir nýttir í nýju kirkjuna. Kirkjan var flutt um set frá vegi á núverandi stað 1971 og sett á steinsteyptan sökkul og þök klædd pappa.

Friðuð í A-flokki af menntamálaráðherra 20. desember 1982 samkvæmt 1. mgr. 26. gr. og 27. gr. þjóðminjalaga nr. 52/1969.

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

Lýsing

Auðkúlukirkja er timburhús, ílangur áttstrendingur að grunnfleti, langhliðar hvorum megin eru 3,8 m að lengd en hinar hliðarnar sex eru 2,25 m að lengd. Þakið er krossreist upp af hliðarveggjum og gaflsneitt yfir kór og framkirkju. Á miðju þaki er ferstrendur stallur og á honum áttstrent þak upp að áttstrendum opnum turni. Hann er burstsettur, skreyttur laufskurði og á honum er há áttstrend spíra. Neðarlega á kirkjuþaki, upp af hverju horni, eru háar stoðir, ferstrendar neðst en rúnnaðar að ofan, og á þeim hnöttur með krossi og minni súlur með hnetti á burstum turns og spíru. Kirkjan stendur á steinsteyptum sökkli, veggir eru klæddir vatnsklæðningu, kantskorið kverkband undir þakskeggi og þök eirklædd. Á sex hliðum kirkju er gluggi, hornsneiddur að ofan. Í þeim er T-laga póstur og tveir fjögurra rúðu rammar neðan þverpósts en rammi með afskorin horn að ofan og í honum þrjár þríhyrndar rúður. Kirkjudyr eru á austurgafli og fyrir þeim eru spjaldsettar vængjahurðir til hlífðar spjaldsettri hurð. Framundan dyrum eru trétröppur með tveimur þrepum.

Inn af kirkjudyrum er gangur og aftursættir skásettir bekkir hvorum megin hans. Veggir eru klæddir strikuðum panelborðum. Flatt og mjótt loft er meðfram veggjum umhverfis kirkjuna en yfir henni miðri er oddbogalöguð hvelfing en oddbogalagað hálfhvol yfir kór og fremsta hluta framkirkju.

Heimild

Kirkjur Íslands, 8. bindi, bls. 9-40.