Fara í efni
Til baka í lista

Bakkaflöt 1, Garðabæ

Bakkaflöt 1
Friðlýst hús

Byggingarár: 1965

Byggingarár: 1965-1968

Hönnuður: Högna Sigurðardóttir arkitekt

Friðun

Ytra byrði hússins friðað af mennta- og menningarmálaráðherra 19. maí 2011 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Ráðherra friðaði innra byrði hússins 1. febrúar 2012, þar með talið allar fastar innréttingar og húsgögn, fasta og færanlega innveggi og hurðir, blómagryfju, yfirborð veggja, gólfefni og klæðingar í loftum.

Byggingarefni

Steinsteypuhús. 

Í þessu íbúðarhúsi birtist næm tilfinning Högnu fyrir landslagi og náttúru auk þess sem hún vinnur með undirstöðuatriði úr forni íslenskri húsagerð sem efnivið í persónulegri og framsækinni listsköpun. Á meistaralegan hátt tekst höfundi að endurskapa andrúm og efniskennd íslenskra torfbæja í nútímalegum formum og frjálsri rýmisskipan. Þessi frumlega túlkun á sérkennum íslenskrar byggingarlistar hefur orðið til þess að margir hafa tilnefnt þetta hús sem eitt merkasta framlag einstaklings til íslenskrar nútímabyggingarlistar. Það álit var staðfest árið 2000, þegar húsið var valið eitt af 100 merkustu byggingum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu, í tengslum við útgáfu alþjóðlegs yfirlitsrits um byggingarlist 20. aldar.

 

Í bókinni Leiðsögn um íslenska byggingarlist segir þetta um húsið: 

Húsið er fellt inn í halla landsins og torfveggir þess hlífa því fyrir veðri og vindum. Hér og hvar eru skörð í veggjunum þar sem birtu er veitt inn um gluggafleti. Að innan er húsið eitt stórt, opið rými með ýmsum kimum sem loka má af með renniveggjum. Miðpunktur rýmisins er arinn sem stendur í miðri stofunni. Skorsteinninn sem gengur upp úr honum er umlukinn eins konar glerhjálmi sem veitir birtu niður í rýmið. 

Til að ná fram sem fallegastri heildarmynd voru flest húsgagnanna innbyggð og eru því órjúfanlegur hluti af húsinu sjálfu sem er steypt úr sjónsteypu og ómálað. Loft, sem brotið er upp í mismunandi hæðir, og renniveggir eru úr ljósum við sem myndar sterka andstæðu við grófa steypuna.

 

Heimild:

Leiðsögn um íslenska byggingarlist(2000). Reykjavík: Arkitektafélag Íslands.

 

Sjá loftmynd.