Fara í efni
Til baka í lista

Breiðabólsstaðir, Álftanesi

Breiðabólsstaðir, Álftanesi
Friðlýst hús

Byggingarár: 1883

Byggingarefni: Hlaðið úr grágrýti

Friðlýsing:

Friðlýst af forsætisráðherra 14. júní 2016 með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar. Friðlýsingin tekur til ytra borðs hússins.

Gamla steinhúsið að Breiðabólsstöðum, Álftanesi var byggt árið 1883 úr klofnum og tilhöggnum grásteini sem límdur var saman með kalksandi. Húsið er einlyft með kjallara og portbyggðu risi. Veggir þess eru tvöfaldir með loftbili á milli og yfir dyrum og gluggum eru heilir steinar sem ná alla leið yfir opið. Grjótið var tekið víðsvegar á landareigninni. Það var klofið þar sem það fannst og borið heim á börum. Viðir voru fengnir úr gömlu salt- og fiskhúsi Siemsensverslunar sem stóð á Eyrinni niður við Seyluna. Erlendur Erlendsson útvegsbóndi byggði húsið en seldi það síðar nafna sínum Björnssyni. 

Breiðabólsstaðahúsið er vel varðveitt og verið er að gera það upp á vandaðan hátt. Það er fágætur vitnisburður um stórt útgerðarheimili frá seinni hluta 19. aldar þegar umfangsmikil sjósókn var stunduð frá Álftanesi og öðrum sjávarbyggðum við innanverðan Faxaflóa. Að öllum líkindum er það eina heillega húsið frá 19. öld sem enn stendur í sveitarfélaginu. Byggingarlag hússins er athyglisvert og óvenju vandað.

 

Heimild:

Sjósókn. Innnesjamenn. Endurminningar Erlends Björnssonar útvegsbónda, formanns, sjósóknara og hreppstjóra á Breiðabólsstöðum á Álftanesi. Nesútgáfan, Reykjavík 1985.