Fara í efni
Til baka í lista

Brekkuskógar 10, Álftanesi, Smiðshús

Brekkuskógar 10
Friðlýst hús

Byggingarár: 1959

Byggingarár: 1963

Hönnuðir: Manfreð Vilhjálmsson og Guðmundur Kr. Kristinsson

Friðun

Friðað af mennta- og menningarmálaráðherra 18. maí 2011 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra byrðis hússins og burðarvirkis þess.

Byggingarefni

Steinsteypuhús.

 

Samhliða tillögu að Brekkuskógum 10 lagði Húsafriðunarnefnd til að húsið að Brekkuskógum 8 væri friðað. Húsin eru byggð á árunum 1959-62 eftir sameiginlegri teikningu arkitektanna Guðmundar Kr. Kristinssonar og Manfreðs Vilhjálmssonar. Húsin standa á brekkubrún við jaðar ósnortins strandsvæðis og mynda samstæða heild. Húsin hafa varðveist með upphaflegum útlitseinkennum og innréttingum. Arkitektarnir tveir litu á byggingu eigin íbúðarhúss sem tækifæri til að reyna ýmsar nýjungar í innra skipulagi, uppbyggingu og efnisnotkun. Í stað steyptra burðarveggja hvílir léttbyggt þakið á burðargrind úr stálstoðum, sem vegg- og gluggaeiningar í föstum stærðum eru felldar að. Skipulag íbúðanna var óhefðbundið, þar sem segja má að gæti japanskra áhrifa: eitt opið rými með rennihurðum, léttum milli­veggjum og skápaeiningum í stað fastra veggja. Að þessu leyti mörkuðu húsin þáttaskil í þróun íslenskrar nútímabyggingarlistar. 

Arkitekt hússins, Manfreð Vilhjálmsson, hefur búið í húsinu frá upphafi ásamt fjölskyldu sinni, en faðir hans Vilhjálmur Jónsson húsasmiður byggði húsið. Nýbyggt þótti húsið afar sérkennilegt, óþekkt var að hafa glugga niður í gólf, engar gardínur heldur einungis tjöld sem rennt var niður og í húsinu var loft- og geislahitun. Að sögn Manfreðs er húsið hannað eins og hestur, sem snýr afturenda í norðrið, allir stórir gluggar snúa í suður en fáir gluggar í norðurátt.

 

Heimild:

Heimsókn í Smiðshús (2006, 31. júlí). Morgunblaðið – Fasteignablað, bls. 32-33.

 

Sjá loftmynd.