Fara í efni
Til baka í lista

Brekkuskógar 8, Álftanesi, Vesturbær

Brekkuskógur 8
Friðlýst hús

Byggingarár: 1963

Hönnuðir: Manfreð Vilhjálmsson og Guðmundur Kr. Kristinsson

Friðun

Friðað af mennta- og menningarmálaráðherra 18. maí 2011 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra byrðis hússins og burðarvirkis þess.

Byggingarefni

Steinsteypuhús.

 

Samhliða tillögu að Brekkuskógum 8 lagði Húsafriðunarnefnd til að húsið að Brekkuskógum 10 væri einnig friðað. Húsin eru byggð á árunum 1959-62 eftir sameiginlegri teikningu arkitektanna Guðmundar Kr. Kristinssonar og Manfreðs Vilhjálmssonar. Húsin standa á brekkubrún við jaðar ósnortins strandsvæðis og mynda samstæða heild. Húsin hafa varðveist með upphaflegum útlitseinkennum og innréttingum. Arkitektarnir tveir litu á byggingu eigin íbúðarhúss sem tækifæri til að reyna ýmsar nýjungar í innra skipulagi, uppbyggingu og efnisnotkun. Í stað steyptra burðarveggja hvílir léttbyggt þakið á burðargrind úr stálstoðum, sem vegg- og gluggaeiningar í föstum stærðum eru felldar að. Skipulag íbúðanna var óhefðbundið, þar sem segja má að gæti japanskra áhrifa: eitt opið rými með rennihurðum, léttum milli­veggjum og skápaeiningum í stað fastra veggja. Að þessu leyti mörkuðu húsin þáttaskil í þróun íslenskrar nútímabyggingarlistar.

 

Sjá loftmynd.