Fara í efni
Til baka í lista

Framnesvegur 20 til 26B, Bankahúsin

Bankahusin-2006_1651237083457

Byggingarár: 1923

Hönnuður: Guðjón Samúelsson

Friðun

Friðað af menntamálaráðherra 14. september 2010 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001. Friðun nær til ytra byrðis húsanna.

Byggingarefni

Steinsteypuhús.

 

Guðjón Samúelsson arkitekt teiknaði Bankahúsin við Framnesveg að enskri fyrirmynd með það að leiðarljósi að íbúar hefðu sjálfstæðan inngang og eigin garð, sem nota mætti til skrúðgarðyrkju og matjurtaræktar. Þau voru reist á árunum 1922-23 og draga nafn sitt af því að Landsbankinn stóð að byggingu þeirra, í því skyni að opna augu fólks fyrir kostum bygginga af þessari gerð og styðja félög og samtök einstaklinga til að byggja slík hús. Um er að ræða 12 íbúða sambyggingu, raðhús á þremur hæðum. Guðjón aðlagaði hugmyndina að þjóðlegum einkennum í byggingarlist og fengu húsin á sig yfirbragð burstabæjar. Húsin eru gott dæmi um það tímabil á þriðja áratug 20. aldar sem kennt hefur verið þjóðernisrómantík í íslenskri byggingarlist.