Fara í efni
Til baka í lista

Hofskirkja, Skagaströnd

Friðlýst kirkja

Byggingarár: 1870

Byggingarár: 1869–1870.

Hönnuður: Sigurður Helgason forsmiður frá Auðólfsstöðum.

Saga

Ekki er vitað hvenær kirkja var reist fyrst að Hofi en elsti máldagi hennar er úr safni Auðunar biskups rauða frá 1318. Kirkjan er þá helguð Ólafi helga Noregskonungi. Núverandi kirkja er reist á grunni torfkirkju frá 1831.

Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.

Lýsing

Hofskirkja er timburhús, 10,06 m að lengd og 6,41 m á breidd. Þakið er krossreist og upp af framstafni er trékross. Kirkjan er klædd listaþili, þak trapisustáli og stendur á steinsteyptum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru fjórir póstagluggar með tveimur fjögurra rúða römmum og einn heldur minni er á framstafni. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar vængjahurðir, okahurðir utan en spjaldahurðir að innan. Trétröppur með fimm þrepum eru framundan kirkjudyrum.

Inn af dyrum er gangur að kór sem hafinn er yfir kirkjugólf um eitt þrep. Aftursættir þverbekkir eru hvorum megin gangs en veggbekkir í kór að altari. Afþiljað loft á bitum er yfir framkirkju inn að miðglugga og stigi við framgafl norðan megin. Veggir eru klæddir spjaldaþili. Yfir innsta hluta framkirkju og kór er borðaklædd hvelfing.

Heimild

Kirkjur Íslands, 8. bindi, bls. 133-160