Fara í efni
Til baka í lista

Hótel Holt, Bergstaðastræti 37 - innréttingar

Friðlýst hús

Byggingarár: 1965

Hönnuður

Gunnar Magnússon, innanhúss- og húsgagnahönnuður

Friðun

Mennta- og menningarmálaráðherra ákvað 31. desember 2012, með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga um húsafriðun, nr. 104/2001, að friða fastar innréttingar á jarðhæð Hótel Holts í Reykjavík . Friðunin nær til fastra innréttinga í veitingasal í norðurenda auk hliðarherbergis, í gestamóttöku auk setustofu, í bókaherbergi/koníaksstofu og í ráðstefnu- og veitingasalnum Þingholti í suðurenda.
Breytingar og viðbætur við skilmála eldri friðlýsingar voru voru samþykktar árið 2025. Viðbót við fyrri friðlýsingu tekur til blýlagðra glugga á götuhlið hótelsins; steinlagðs gólfs í anddyri, setustofu og gestamóttöku; flísalagðs gólfs, afgreiðsluborðs og stigahandriðs í forsal Þingholts og afgreiðsluborða í hótelbar og gestamóttöku.

Innréttingar á jarðhæð Hótel Holts bera vitni um mikinn metnað eigendanna og vandaða hönnun. Gunnar Magnússon hönnuður innréttinganna er einn af frumkvöðlum í íslenskum húsgagna- og innanhússarkitektúr 20. aldar og eru innréttingarnar í Hótel Holti eitt af lykilverkum hans, sem hafa varðveist. Þær hafa mikla sérstöðu hvað varðar vandaðan frágang. Bakrýmum, s.s. bar og Kjarvalsstofu auk anddyri, hefur verið breytt á síðustu árum, en matsalur (1965, breytt skv. hönnun Gunnars Magnússonar árið 1992), Þingholtssalur (1973) og bókaherbergi (1984) eru upprunaleg rými þar sem vönduð hönnun Gunnars Magnússonar nýtur sín vel.

Heimild:

Harpa Þórsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands (2010).Umsögn um menningarsögulegt verðmæti innréttinga. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Sjá loftmynd