Fara í efni
Til baka í lista

Ljóskastarahús, Seltjarnarnesi, Urð á Suðurnesi

Friðlýst hús

Byggingarár: 1940

Friðlýsing

Friðlýst af mennta- og menningarmálaráðherra 27. nóvember 2018, skv. 3. mgr. 18. gr. laga nr. 80/2012 um menningarminjar. Friðlýsingin tekur til hins steinsteypta mannvirkis í heild og hlaðins sökkuls umhverfis það.

Byggingarefni

Steinsteypa

Höfundur

Lloyd Benjamin

Mannvirkið er einstakt á Íslandi og mikilvæg heimild um hernámstímann og umsvif breska  setuliðsins hér á landi. Húsið er 26 fm að grunnfleti, steinsteypt ofan á grjóthleðslu. Gólf, veggir og þak eru úr steinsteypu. Það var byggt utan um ljóskastara við upphaf seinni heimstyrjaldar, veturinn 1940-41. Húsið var hannað af Lloyd Benjamin, verkfræðingi breska setuliðsins. Sami höfundur teiknaði gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli, sem friðaður var af ráðherra árið 2011. Ljóskastarinn var hluti af varnarbúnaði breska hersins við innsiglinguna að Reykjavík. Ljóskastarahúsið tengdist herskálahverfi á Suðurnesi og er eina mannvirkið sem eftir er frá þeim tíma. Húsið er hið eina sinnar tegundar hér landi en vitað er um svipuð hús í Færeyjum, við Lossie í Skotlandi og í Ástralíu. Ekki hafa fundist nákvæmlega eins hús og því kann húsið við Stóruurð að hafa fágætisgildi á heimsvísu.

Ljóskastarahúsið hefur auk þess gildi sem aðgengilegur minjastaður og vinsæll áningastaður á gönguleiðinni um Suðurnes, enda eru form þess, gerð og staðsetning myndræn og fögur. Tæknileg uppbygging þess er merkileg, en löng ending steinsteypunnar ber vott um vandaða gerð og frágang í upphafi.