Fara í efni
Til baka í lista

Verbúðir Grandagarði, Grandagarður nr. 15-35, 39-77 og 79-93

Verbúðir, Grandagarði
Friðlýst hús

Byggingarár: 1945

Friðun

Friðað af menntamálaráðherra 26. mars 2009 með vísan til 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001. Friðunin nær til ytra byrðis verbúðanna.

Saga

Verbúðirnar voru reistar á árunum 1945-1955 eftir uppdráttum Eiríks Einarssonar arkitekts og Valgeirs Björnssonar verkfræðings.  Gildi verbúðanna felst bæði í því að þær eru sérstakar gerðar sinnar vegna og í þætti þeirra í atvinnusögunni.