Fara í efni

Fundur starfshóps minjanefndar Eystrasaltssvæðisins

Á myndinni frá vinstri: Juhana Lahti (Heritage Agency Finland), Martin Søberg (The Royal Academy Denmark), Henny Hafsteinsdóttir (Minjastofnun Íslands) og Laura Ingerpuus  (National Heritage Board Estonia).

Starfshópur minjanefndar Eystrasaltssvæðisins hittist reglulega á fjarfundum til að ræða um byggingararf 20. aldarinnar. Hópurinn hefur starfað frá árinu 2014 en Henny Hafsteinsdóttir minjavörður Reykjavík og nágrennis hefur nýlega tekið sæti í hópnum. Árið 2017 vann hópurinn ásamt Swedish National Heritage Board skýrsluna From Postwar to Postmodern. Nú hefur hópurinn beint sjónum sínum að arfleið póstmóderniskrar byggingarlistar og skoðar m.a. hvaða tækifæri og áskoranir felast í því að sameina varðveislu og endurnýtingu á þessum tiltekna byggingararfi.

Dagana 4. – 5. maí sl. hittust fulltrúar Finnlands, Danmerkur, Íslands og Eistlands í Kaupmannahöfn, en fulltrúar Svíþjóðar, Litáen og Póllands tóku þátt í vinnufundinum gegnum fjarfundarbúnað.

Nánari upplýsingar um minjanefndina The Baltic Region Heritage Committee (BRHC) má finna hér.