Óleyfisframkvæmd við Óttarsstaðafjárborg
Á miðvikudagseftirmiðdegi eftir vinnu þann 3. júní rak starfsmaður Minjastofnunar augun í færslu frá gönguklúbbnum Vesen og vergangur sem farið hafði í gönguferð að hinni friðlýstu Óttarsstaðafjárborg fyrr í vikunni. Ljóst var af myndum og færslu að þarna væru einhverjar framkvæmdir í gangi sem ekki lægi leyfi Minjastofnunar fyrir. Starfsmaður hafði strax samband við minjavörð svæðisins og var farið í það á fimmtudagsmorgni að reyna að komast að því hverjar þessar framkvæmdir væru og á hvers vegum. Haft var samband við Hafnarfjarðarbæ og Byggðasafn Hafnarfjarðar en á hvorugum staðnum kannaðist nokkur við framkvæmdirnar. Næstu daga var unnið að því að hafa samband við landeigendur sem reyndust nokkrir en ekki könnuðust menn þar á bæ heldur við framkvæmdirnar. Á föstudegi bárust Minjastofnun svo fyrstu myndir af svæðinu. Minjavörður Reykjaness fór einnig á staðinn og skoðaði framkvæmdir og myndaði. Reist hafði verið skýli og settur upp einhvers konar ofn með niðurgröfnu röri. Þá var töluvert af byggingarefni, tómum kössum og rusli á svæðinu og ljóst að framkvæmdin væri enn í fullum gangi. Fyrir framan fjárborgina hafði furu verið plantað en ekki er leyfilegt að planta trjám við friðlýstar minjar og voru þær því fjarlægðar. Á mánudegi var framkvæmdin svo tilkynnt til lögreglu ásamt því að starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar og starfsmaður Minjastofnunar fóru á staðinn til að kanna hvernig best væri að fjarlægja skýlið og annað brak úr fjárborginni. Starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar fjarlægðu svo á næstu dögum allt byggingarefni og rusl úr fjárborginni. Að lokum fóru starfsmenn Minjastofnunar og könnuðu jarðraskið sem orðið hafði þar sem ofninn var áður en þeir fylltu í skurðinn og gengu frá. Fylgst verður reglulega með fjárborginni í sumar til að sjá hvernig skurðurinn jafnar sig.
Ekki er enn vitað hver stóð fyrir framkvæmdum en þekki einhver til er viðkomandi hvattur til að hafa samband við Minjastofnun Íslands. Minjastofnun vill að lokum þakka Hafnarfjarðarbæ og Byggðasafni Hafnarfjarðar fyrir gott samstarf við að koma fjárborginni aftur í fyrra horf.

Fyrir og eftir óleyfisframkvæmd.