Fara í efni
Til baka í lista

Laufásvegur 7, Þrúðvangur

Copy-of-DSC_1689_1651239489099
Friðlýst hús

Byggingarár: 1918

Friðað af menntamálaráðherra 22. febrúar 2010 samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/201 um húsafriðun.  Friðunin nær til ytra byrðis og útskorinna hurða og lágmynda í stofum hússins ásamt aðalhurð og stiga.

Byggingarefni

Steinsteypuhús.

Árið 1918 fékk frú Margrét Zoëga Jens Eyjólfsson forsmið til að hanna og byggja hús sitt að Laufásvegi 7 í Reykjavík, sem hún kallaði Þrúðvang. Allt ber húsið höfundi sínum gott vitni um fágaða hönnun og frágang auk þess sem varðveislugildi þess fellst í byggingarefninu, sem var tilhöggið grágrýti. Margrét fékk Ríkharð Jónsson útskurðarmeistara og Gunnlaug Blöndal til að skreyta húsið, s.s. með útskurði á stofuhurðum, lágmyndum ofan við þær og fagurlega útskorinni aðalhurð. Útskurður yfir stofudyrum hefur ýmsar trúarlegar tilvitnanir, bæði í kristni og heiðni.