Fara í efni

Varðveisluverð mannvirki

30. gr. Verndun annarra húsa og mannvirkja

1. mgr. Eigendum húsa og mannvirkja svo og forráðamönnum kirkna, sem ekki njóta friðunar, er heimilt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa. Minjastofnun Íslands skal innan fjögurra vikna frá því að erindi berst tilkynna viðkomandi aðilum um álit sitt. Stofnuninni er heimilt að leggja til skilyrði um slíkar framkvæmdir eða gera tillögu um friðlýsingu umrædds húss eða mannvirkis.

2. mgr. Byggingarfulltrúum er heimilt að gera að skilyrði að eigendur húsa og mannvirkja, svo og forráðamenn kirkna, leiti eftir áliti Minjastofnunar Íslands áður en leyfi er veitt til framkvæmda.

3. mgr. Hafi álits Minjastofnunar Íslands verið leitað á grundvelli 1. mgr. eða byggingarfulltrúi gert kröfu þar um skv. 2. mgr. skal það liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt vegna viðkomandi framkvæmdar. Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi skal taka tillit til skilyrða sem Minjastofnun leggur til í áliti sínu. Sama á við um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt skipulagslögum