Fara í efni
Til baka í lista

Laugarnesskóli, Kirkjuteig 24, Reykjavík

Friðlýst hús

Byggingarár: 1934

Byggingarár: Fyrsti áfangi skólans var reistur á árunum 1934 til 1945.

Hönnuðir: Einar Sveinsson arkitekt og Ágúst Pálsson arkitekt.

Friðaður 14. september 2010 samkvæmt 1. mgr. 4. gr. laga nr. 104/2001 um húsafriðun. Friðunin nær til ytra byrðis hússins og miðrýmis í öðrum áfanga sem byggður var á árunum 1942-1945.

Laugarnesskóli er fyrsta byggingin sem Einar Sveinsson arkitekt teiknaði í embætti húsameistara Reykjavíkur. Annan áfangann teiknaði Einar í samvinnu við Ágúst Pálsson arkitekt. Öll uppbygging miðrýmis skólans var mikið nýmæli og er enn ein fegursta rýmismyndun í íslenskri byggingarlistasögu. Mjög var vandað til alls frágangs og efnisnotkunar, sem sést best á því að lítið sem ekkert hefur þurft að huga að viðhaldi á skólanum, hvorki innanhúss né utan.