Vesturhópshólakirkja, Húnaþing vestra

Byggingarár: 1878
Hönnuður: Sigurður Helgason forsmiður frá Auðólfsstöðum.
Saga
Kirkja er fyrst nefnd á Vesturhópshólum í Auðunarmáldaga árið 1318 en virðist hafa verið þar mun lengur, því þá eru sumir gripir hennar sagðir gamlir. Núverandi kirkja var reist í stað torfkirkju frá 1829 sen var farin að láta verulega á sjá.
Friðuð 1. janúar 1990 samkvæmt aldursákvæði 1. mgr. 36. gr. þjóðminjalaga nr. 88/1989.
Lýsing
Vesturhópshólakirkja er timburhús, 7,69 m að lengd og 4,73 m á breidd, með klukknaport við vesturstafn, 1,40 m að lengd og 1,73 m á breidd. Þakið er krossreist og trékross upp af framstafni. Kirkjan er klædd steinajárni, þak bárujárni og stendur á steinhlöðnum sökkli. Á hvorri hlið kirkju eru þrír gluggar. Í þeim er miðpóstur og tveir þriggja rúðu rammar. Lítill póstgluggi er efst á framstafni með tveggja rúðu römmum. Á klukknaporti er krossreist bárujárnsklætt þak en efsti hluti stafns og hliða er klæddur steinajárni. Stoðir eru undir framhornum en hálfstoðir við framstafn kirkju. Fyrir kirkjudyrum eru tvöfaldar spjaldsettar vængjahurðir.
Inn af dyrum er gangur að kór sem skilinn er frá framkirkju með lágu pílárasettu kórþili. Framan þess sunnan megin er prédikunarstóll. Þverbekkir eru hvorum megin gangs en veggbekkir umhverfis í kór að altari. Veggir eru klæddir standþiljum. Efst á þeim er band með hvelfdum lista að neðan en ávölum að ofan sem leitt er fyrir gafla og umlykur kirkjuna. Yfir henni er borðaklædd hvelfing.
Heimild
Kirkjur Íslands, 7. bindi, bls. 263 - 285