Fara í efni

Silfrastaðakirkja komin heim

Þann 4. nóvember síðastliðinn var Silfrastaðakirkja flutt aftur heim að Silfrastöðum eftir að hafa verið í viðgerð við trésmíðaverkstæðið Ýr á Sauðárkróki undanfarin fimm ár.

Kirkjan var reist árið 1896 og fagnar því 130 ára afmæli á þessu ári. Bygging hennar var á sínum tíma kostuð af Steingrími Jónssyni, bónda á Silfrastöðum, en yfirsmiður var Þorsteinn Sigurðsson, sem einnig hannaði og byggði Sauðárkrókskirkju og Auðkúlukirkju í Austur-Húnavatnssýslu. Kirkjan var bændakirkja allt til ársins 1958, þegar þáverandi bóndi á Silfrastöðum, Jóhann Lárus Jóhannesson, afhenti hana Silfrastaðasöfnuði. Nánari upplýsingar um sögu og byggingarlist kirkjunnar má finna hér.

 

Ástæða þess að kirkjan var tekin af grunni og flutt til Sauðárkróks var sú að undirstöður hennar og burðarvirki voru orðin illa farin af fúa. Ljóst var að ráðast þyrfti í umfangsmiklar viðgerðir á kirkjunni, auk þess sem nauðsynlegt var að skipta um jarðveg undir henni og steypa nýjan sökkul.

Fyrst taka þurfti kirkjuna af grunni var það metið svo að hagkvæmast væri að flytja hana til Sauðárkróks, þar sem hægt væri að vinna að viðgerðunum við góðar aðstæður, með öll nauðsynleg tæki og tól til staðar. Með því mátti jafnframt komast hjá því að koma upp bráðabirgðaaðstöðu á Silfrastöðum og daglegum ferðum starfsfólks um 45 km leið á meðan framkvæmdir stæðu yfir.

Það er mikið fagnaðarefni að kirkjan sé nú komin aftur heim á sinn stað, þótt enn séu fjölmörg handtök eftir áður en framkvæmdum lýkur. Meðal þess sem eftir stendur er endursmíði á turni kirkjunnar auk þess að koma pottjárnsgluggum og hurðum aftur fyrir, einangra og klæða veggi og gólf, ganga frá listum og skrauti ásamt því að mála kirkjuna bæði að utan og innan.

Silfrastaðakirkja hefur hlotið styrki úr húsafriðunarsjóði frá árinu 2020. Framkvæmdirnar hófust með vandaðri undirbúningsvinnu og áætlanagerð sem unnið hefur verið eftir undanfarin ár, eftir því sem fjármagn hefur fengist til verksins.

Auk vinnu fagmanna hafa sóknarnefnd og sóknarbörn lagt ómælda vinnu í verkefnið. Þar ber sérstaklega að nefna Maríu Jóhannsdóttur á Kúskerpi, formann sóknarnefndar, sem hefur haldið utan um framkvæmdina og séð um öflun leyfa og styrkja. Eiginmaður hennar, Einar Halldórsson, hefur jafnframt lagt til vélar og annast jarðvegsframkvæmdir og flutning kirkjunnar.

Minjastofnun Íslands óskar sóknarnefnd og sóknarbörnum Silfrastaðakirkju innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga í varðveislu kirkjunnar!