Fara í efni

Húsafriðunarsjóður 2026 - styrkúthlutun

Minjastofnun Íslands bárust alls 271 umsókn um styrki úr húsafriðunarsjóði vegna verkefna árið 2026, samtals að upphæð 1.243.927.679 kr.. Styrkir eru veittir til 218 verkefna, samtals að upphæð 363.500.000 kr..

Upphæð til úthlutunar úr húsafriðunarsjóði hækkaði um 98.000.000 kr. á milli áranna 2025 og 2026, vegna sérstakrar fjárveitingar í tilefni 50 ára afmælis húsverndarársins 1975. Á árinu 2025 veitti húsafriðunarsjóður styrki til 178 verkefna, samtals að upphæð 265.500.000 kr.

Umsækjendum er bent á, að á lista yfir styrkúthlutanir  er einungis getið um þau verkefni sem hlutu styrk. Öllum umsækjendum verður sent bréf í tölvupósti á næstunni með nánari upplýsingum, m.a. um þá verkþætti sem styrkur er veittur til. Útborgun styrkja hefst 1. maí 2026.

Minnt er á að hafa þarf samráð við Minjastofnun Íslands í tengslum við þær framkvæmdir sem styrkir eru veittir til hverju sinni áður en þær hefjast. Úthlutun styrks jafngildir ekki sjálfkrafa samþykki á því hvernig verkið verður unnið.

Listi yfir styrkúthlutanir fyrir árið 2026 má finna hér.