Húsafriðunarsjóður 2027 - opnað fyrir umsóknir
Opnað er fyrir umsóknir í húsafriðunarsjóð þann 15. október ár hvert. Umsóknarfrestur er til miðnættis 1. desember sama ár.
Áður en sótt er um í húsafriðunarsjóð er mikilvægt að kynna sér vel:
- Úthlutunarreglur húsafriðunarsjóðs
- Verklag húsafriðunarnefndar við mat á umsóknum
- Nánari leiðbeiningar við gerð umsókna (eru í pdf-skjali sem hægt er að hlaða niður)
Umsóknir eru fylltar út í umsóknarkerfi á Island.is, og því þarf innsendandi umsóknar að fara inn á Island.is á sínum persónulegu rafrænu skilríkjum. Til að komast inn í umsóknarkerfi húsafriðunarsjóðs á Island.is, þarf að smella á einn af þremur rauðbrúnu hnöppunum hér fyrir neðan. Allar almennar fyrirspurnir varðandi umsóknir skulu berast á netfangið: husafridunarsjodur@minjastofnun.is, en einnig er hægt að hringja í síma 570 1307.
Umsókn um styrk til áætlunargerðar og/eða framkvæmda við hús eða mannvirki
Umsókn um styrk fyrir byggingarsögulega rannsókn
Umsókn um styrk til að gera tillögu að verndarsvæði í byggð