Fara í efni

Álitsskylda afnumin fyrir hús og mannvirki byggð á árunum 1924-1940

Þann 22. október sl. samþykkti Alþingi lög um breytingu á 30. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012. Samhliða var samþykkt breyting á lögum um mannvirki, nr. 160/2010.   

Eldra ákvæði 1. mgr. 30. gr. laga um menningarminjar kvað á um að eigendur húsa og mannvirkja, sem njóta ekki friðunar en eru byggð á árunum 1924-1940, væri skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands með minnst sex vikna fyrirvara ef þeir ætluðu breyta þeim, flytja þau eða rífa. Sama skylda hvíldi á forráðamönnum kirkna, byggðum á árunum 1924-1940.   

Ákvæði 1. mgr. 30. hefur nú verið breytt. Í stað skyldu, er eigendum húsa og mannvirkja og forráðamönnum kirkna, óháð byggingarári þeirra, nú heimilt að óska eftir áliti Minjastofnunar Íslands vegna breytinga á húsum og mannvirkjum. 

Jafnframt hefur verið gerð breyting á 2. og 3. mgr. 30. gr. laga um menningarminjar.   

Ákvæði 2. mgr. 30. gr. hefur verið breytt á þann veg að byggingarfulltrúum er nú heimilt að gera að skilyrði að álits sé aflað hjá Minjastofnun Íslands, áður en leyfi er veitt til framkvæmda.   

Breyting á 3. mgr. 30. gr. laganna hljóðar þannig að hafi álits Minjastofnunar Íslands verið leitað á grundvelli 1. mgr. eða byggingarfulltrúi gert þar kröfu um skv. 2. mgr. skal það liggja fyrir áður en byggingarleyfi er veitt vegna viðkomandi framkvæmdar. Við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi skal taka tillit til skilyrða sem Minjastofnun leggur til í áliti sínu. Sama á við um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt skipulagslögum.   

Lögin koma til framkvæmda hjá Minjastofnun Íslands við birtingu þeirra í Stjórnartíðindum, sbr. 8. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingarblað nr. 15/2005.   

Hér má sjá lagabreytinguna í heild sinni.

Hér er hlekkur þar sem sjá má meðferð frumvarpsins hjá Alþingi.