Málþing á vegum BRHC
Málþing á vegum Minjastofnunar Póllands var haldið dagana 16. – 19. júní sl. í tengslum við formennsku Póllands í minjanefnd Eystrasaltssvæðisins en Pólland hefur í formennsku sinni lagt áherslu á að efla stafræna skráningu áþreifanlegs og óáþreifanlegs menningararfs. Margrét Valmundsdóttir sótti viðburðinn fyrir hönd Minjastofnunar Íslands en á dagskrá voru fyrirlestrar í bland við umræður og vettvangsferðir.
Tæki og tól sem nýtt eru við skönnun og skráningu á byggingum kynnt fyrir hópnum.
Meginviðfangsefni málþingsins voru stafræn skráning menningararfs, skráning og miðlun gagna tengdum menningarminjum og mikilvægi þeirra fyrir vernd, rannsóknir og stjórnun minjavörslunnar. Á dagskrá var m.a. vettvangsferð þar sem fræðst var um þrívíddarskönnun á friðuðum byggingum sem og fyrirlestur um þrívíddarskönnun og endurgerð pípuorgela. Í tengslum við það var hópnum boðið að fylgjast með upptökum á hljómum pípuorgels en með því var verið að leitast við að varðveita þann óáþreifanlega menningararf sem pípuorgelin búa yfir. Einnig var umræðufundur þar sem allir þátttakendur ræddu um þær áskoranir sem þeir eiga við í sínu heimalandi þegar kemur að skráningu menningararfs, hvort sem þar var um að ræða uppbyggingu gagnagrunna, magn gagna og forgangsatriði við skráningu.
Sérfræðingar vinna að hljóðupptöku á pípuorgeli sem lið í skráningu og varðveislu óáþreifanlegs menningararfs.
Þátttaka Minjastofnunar Íslands í málþinginu styrkir alþjóðlegt samstarf stofnunarinnar og veitir mikilvæga innsýn í þróun aðferða við stafræna skráningu og miðlun menningararfs. Stafræn skráning og samræmd gagnasöfnun eru sífellt mikilvægari þáttur í vernd menningarminja, ekki síst í ljósi loftslagsbreytinga, náttúruvár og annarra áskorana sem minjavarslan stendur frammi fyrir.