Skýrsla Europol "Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists"
“Changing tactics, changing targets: the evolving nature of museum heists” er heiti á nýútgefinni skýrslu Europol sem fjallar um breyttar aðferðir og áskoranir er kemur að þjófnaði á safngripum.
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að þjófnaðir á söfnum verði sífellt fólskulegri og ofbeldisfyllri. Gerendur beina í auknum mæli sjónum sínum að verðmætum munum, svo sem góðmálmum, gimsteinum og öðrum menningarverðmætum.
Þá kemur einnig fram að ný glæpanet tengist þjófnaði á safngripum og menningarverðmætum sem bendir til mikillar eftirspurnar á glæpamarkaði m.a. vegna þess hve auðvelt sé að koma stolnum munum í ólöglega endursölu.
Hlekk á skýrsluna má finna hér.