Starfsmannaferð til Prag – varðveisla og miðlun menningarminja
Dagana 12. – 16. október fóru starfsmenn Minjastofnunar Íslands í starfskynningarferð til Prag í Tékklandi. Þar kynntu starfsmenn sér fjölbreytt verkefni á sviði varðveislu, rannsókna og miðlunar menningarminja, með sérstakri áherslu á aðgengi almennings, gagnavörslu og verndun sögulegra minja og mannvirkja.
Í ferðinni var kastalinn í Prag heimsóttur þar sem Jan Mařík, forstöðumaður Fornleifafræðistofnunar Tékknesku vísindaakademíunnar (Archeologický ústav AV ČR), tók á móti hópnum. Hann kynnti hvernig staðið hefur verið að varðveislu fornleifa og menningarminja á kastalasvæðinu, meðal annars á neðanjarðarsvæði undir kastalanum sem er í umsjón stofnunarinnar og ekki opið almenningi.
Fornleifafræðistofnun Tékknesku vísindaakademíunnar.
Starfsmenn heimsóttu einnig höfuðstöðvar Fornleifafræðistofnunarinnar þar sem þeir fengu kynningu á starfsemi hennar, einkum á sviði skráningar, gagnavörslu og miðlunar upplýsinga um fornleifar. Fjallað var um hvernig stofnunin heldur utan um umfangsmikil gagnasöfn sem verða til við fornleifarannsóknir ásamt uppbyggingu við menningarminjastaði og bættu aðgengi almennings að þeim.Stofnunin heldur meðal annars utan um skráningu fornleifa og vefsjá þar sem hægt að nálgast upplýsingar um skráðar fornleifar á svipaðan hátt og á vefsjá Minjastofnunar Íslands auk sérstakrar vefsíðu með öllu gagnasafni fornleifarannsókna í Tékklandi.
Að lokum var Villa Müller heimsótt, eitt þekktasta verk austurríska og tékkóslóvakíska arkitektsins Adolf Loos, sem reist var árið 1930. Húsið er í eigu og umsjón Muzeum Prahy og nýtur hæsta stigs friðunar í Tékklandi. Þar kynntu starfsmenn sér umfangsmiklar endurbætur á byggingunni.
Villa Müller.