Stígur lagður að Prestsvörðunni
Nýr göngustígur að Prestsvörðunni í Leiru var vígður sunnudaginn 16. ágúst við hátíðlega athöfn. Með tilkomu stígsins hefur aðgengi almennings að vörðunni verið stórbætt og auðveldar þar með gestum að heimsækja staðinn og kynna sér sögu hans. Einnig hefur upplýsingaskilti verið komið upp á staðnum þar sem sagt er frá tilurð vörðunnar.

Prestsvarða er þekkt minnismerki sem séra Sigurður B. Sívertsen, prestur á Útskálum, lét hlaða árið 1876. Samkvæmt heimildum villtist hann í stórhríð á leið sinni frá Keflavík, lagðist hann fyrir og lét fyrirberast á þeim stað þar sem hann síðar lét reisa vörðuna. Séra Sigurður lét klappa 8. vers 4. Davíðssálms í steinhellu sem reist var við vörðuna og sést sú áletrun þar enn.
Að baki stígagerðinni stendur hópur áhugafólks sem unnið hefur að því undanfarin ár að efla kynningu á sögu Prestsvörðunnar og varðveita minningu séra Sigurðar. Verkefnið naut meðal annars stuðnings frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og Menningarsjóði Suðurnesjabæjar, auk framlaga frá einstaklingum og fyrirtækjum.
Hér má nálgast nánari upplýsingar um vörðuna og staðsetningu hennar í minjavefsjá: Prestsvarðan í minjavefsjá