Fara í efni

Uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum

Svipmyndir frá uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum.
Svipmyndir frá uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum.

Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fór fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur. Fornverkaskólinn hlaut verðlaun í flokknum "Fræðsla, þjálfun og færni" og í umsögn dómnefndar segir:

„Verkefnið tekst á við hnignun þekkingar á hefðbundnu byggingarhandverki í Evrópu með því að miðla því áfram á lifandi og áþreifanlegan hátt. Það byggir á öflugu kennslulíkani um flutning þekkingar á milli kynslóða sem tryggir bæði varðveislu húsanna sjálfra og þeirrar þekkingar sem þarf til að halda þeim við. Verkefnið stendur á traustum grunni vandaðs handverks og nýtur stuðnings af alþjóðlegu og fræðilegu samstarfi, og er góð fyrirmynd fyrir varðveislu torfhúsaarfsins.“

Svipmyndir frá uppskeruhátíð á Tyrfingsstöðum.

Í ár eru einnig að verða 20 ár síðan Fornverkaskólinn og landeigendur á Tyrfingsstöðum gerðu með sér samning um endurbyggingu torfhúsanna á staðnum. Á námskeiðum í sumar var endurbyggingu síðasta hússins lokið. Áföngunum var fagnað á Tyrfingsstöðum sl. föstudag þar sem gestum var boðið að reka smiðshöggið á verkið. Rúnar Leifsson forstöðumaður Minjastofnunar Íslands tók til máls ásamt ásamt Berglindi Þorsteinsdóttur, safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga, Sigríði Sigurðardóttur, fyrrv. safnstjóra Byggðasafns Skagfirðinga og stofnandi Fornverkaskólans, Clöru Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi og Páli V. Bjarnasyni, arkitekt og opinberum fulltrúa Europa Nostra.

Þess má geta að Fornverkaskólinn hlaut sérstaka viðurkenningu Minjastofnunar Íslands árið 2023 fyrir framlag sitt til varðveislu á fornu byggingarhandverki. Auk þess hafa námskeið skólans verið styrkt af Húsafriðunarsjóði.

Við óskum Byggðarsafni Skagfirðinga og Fornverkaskólanum innilega til hamingju með verðskulduð verðlaun.

Tyrfingsstaðir á Kjálka í Skagafirði.