Spegill fortíðar - silfur framtíðar
3. apríl kl. 20:00-22:00
Almennir viðburðir
Breiðfirðingabúð Faxafeni 14
Hafnir á Skaga, Dysnes við Eyjafjörð og aðrar minjar við sjávarsíðuna á Norðurlandi
Sædís Gunnarsdóttir minjavörður Norðurlands eystra, Guðmundur Stefán Sigurðsson
minjavörður Norðurlands vestra og Lísabet Guðmundsdóttir minjavörður Vestfjarða.
Loftslagsbreytingar eru töluvert í umræðunni þessa dagana og áhrifa þeirra gætir svo
sannarlega hér á landi. Aukin stormvirkni, fyrirsjáanleg hækkun sjávarmáls og aðrar öfgar í
veðurfari leiða til þess að landbrot er að aukast við strandlengjuna. Á Íslandi er og var þorri
búsetusvæða við sjó enda aðgangur og nýting sjávarauðlinda ein af forsendum þess að hér
var búsetuhæft. Í dag eru minjastaðir við sjávarsíðuna í mikilli hættu vegna landbrots og því
þarf aukinn kraft í fornleifaskráningu og rannsóknir áður en þessi menningarverðmæti og
þekkingin um þau hverfur á haf út. Minjastofnun Íslands stóð fyrir fáum árum fyrir
átaksverkefni í skráningu strandminja, að auki hafa rannsóknaráherslur verið að færast yfir á
sjávarsíðuna. Minjaverðir á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og eystra ætla að fjalla um
rannsóknir sem hafa átt sér stað við sjávarsíðuna á undanförnum árum sem sumar hverjar
hafa leitt til þess að ómetanlegum menningarverðmætum hefur verið bjargað frá glötun.
Fegurð fjarða – Ida Semey, verkefnisstjóri
„Fegurð fjarða“ er list- og fræðslusýning sem verður haldin á átta stöðum við Eyjafjörð,
Siglufjörð og Ólafsfjörð sumarið 2025. Verkefnið, sem samanstendur m.a. af; ljósmyndum
eftir Veigu Grétarsdóttur, fræðslu um mengun, tónlist með Svavari Knút, listsköpun úr rusli og
samfélagsviðburðum, hefur það að markmiði að auka vitund um umhverfisvernd og ábyrgð í
umgengni við haf og strönd. Sýningin er unnin í samstarfi við heimamenn, listamenn og
fræðimenn og stendur frá 2. júní til 1. október 2025.