Ársfundur EAC og málþing um menningararfsglæpi
Aðalfundur og hið árlega málþing EAC (European Archaeological Council) var haldið dagana 19. – 21. mars í Altamira, Santillana del Mar á Spáni. Á aðalfundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf með skýrslu forseta og ársreikningar ráðsins kynntir og samþykktir. 32 lönd eru nú hluti af EAC og mættu fulltrúar frá 24 löndum á aðalfundinn. Fulltrúi Minjastofnunar Íslands er Agnes Stefánsdóttir sem einnig situr í stjórn EAC sem varaforseti. Í lok fundarins kynnti Þór Ingólfsson Hjaltalín útgáfu nýrra leiðbeininga vinnuhóps sem hann var í forsvari fyrir. Leiðbeiningarnar fjalla um hvernig meta megi gildi minjastaða (Articulating significance of archaeological sites) en þær má finna í rafrænni útgáfu hér.
Málþingið sem haldið var í framhaldi af aðalfundi var skipulagt af menningarmálaráðuneyti Spánar í samstarfi við EAC og fór fram í safninu við Altamira hellinn sem þekktur er vegna hellamálverka frá steinöld, þau elstu eru um 36.000 ára gömul. Staðurinn hefur verið á heimsminjaskrá Unesco frá 1985.

Þema málþingsins að þessu sinni var: Bridging Borders in Heritage Protection: towards best practice for prevention of archaeological crime. Fluttir voru 25 fyrirlestrar um forvarnir gegn menningararfsglæpum á einum og hálfum degi af sérfræðingum víðsvegar að úr Evrópu og mun ráðstefnurit verða gefið út á næsta ári. Dagskrá ráðstefnunnar má finna hér.