Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um styrki til rannsókna á ritmenningu íslenskra miðalda - RÍM

Ljósmynd: Guðlaugur Óskarsson.
Ljósmynd: Guðlaugur Óskarsson.

Auglýsing frá Snorrastofu

Í tilefni af því að árið 2019 voru 75 ár liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi, standa forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, menningar- og viðskiptaráðuneyti, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Snorrastofa í Reykholti fyrir átaksverkefni til fimm ára um þverfaglegar rannsóknir á ritmenningu íslenskra miðalda.

Fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytis auglýsir Snorrastofa nú eftir umsóknum um styrki vegna verkefnisins fyrir árið 2023.

Hlutverk sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði ritmenningar íslenskra miðalda, m.a. með því að efla rannsóknir á heimildum um ritunarstaði miðaldahandrita á Íslandi og þá sérstaklega á þeim lærdómsmiðstöðvum og klaustrum þar sem ritmenning blómstraði. Verkefnið skiptist í tvo verkþætti: Annars vegar að rannsaka menningarminjar og umhverfi tengt þessum stöðum og hins vegar handrita- og bókmenningu þeirra. Umsóknir verða metnar með tilliti til vísindalegs og menningarsögulegs gildis.Vonir standa til að nákvæmar lýsingar verði unnar á þeim ritmenningarstöðum, sem verða fyrir valinu og rök færð fyrir menningarlegu vægi þeirra handrita og bókmenntaverka sem stöðunum tengjast. Áætlað árlegt fé til sjóðsins er 35 m.kr. á tímabilinu 2020 til 2024.

Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar upplýsingar um fyrirhuguð verkefni á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Sé fyrirhugað að sækja um styrk til verkefnis, sem taka mun fleiri en eitt ár að vinna, skal umsækjandi gera grein fyrir heildarmarkmiðum verkefnis, áfangaskiptingu og kostnaðaráætlun hvers áfanga. Styrkveitingu fylgir ekki skuldbinding til að veita styrki til síðari áfanga verkefnis.

Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á heimasíðu Snorrastofu í Reykholti, www.snorrastofa.is – rannsóknir og fræði.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2023. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.

Úthlutanir úr sjóðnum eru á hendi menningar- og viðskiptaráðuneytis að fenginni umsögn sérstakrar úthlutunarnefndar. Snorrastofa hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu unnin í samræmi við þær úthlutunarreglur, sem birtar eru á heimasíðu Snorrastofu. Heimilt verður að óska eftir frekari gögnum og upplýsingum frá umsækjendum eftir því sem þurfa þykir.

19. janúar, 2023

Snorrastofa,
320 Reykholt
Sími: 433 8000 og 893 1492
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is