Fornverkaskólinn hlýtur Evrópsku minjaverndarverðlaunin
Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur Evrópsku minjaverndarverðlaunin / Europa Nostra Awards 2026, sem eru virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu. Verðlaunin eru veitt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Europa Nostra með stuðningi úr Menningaráætlun ESB. Að þessu sinni hlutu 30 verkefni frá 18 löndum viðurkenningu, en alls barst 261 umsókn frá 40 löndum.
Fornverkaskólinn, sem starfræktur er af Byggðasafni Skagfirðinga, var stofnaður árið 2006 til að varðveita hefðbundnar íslenskar byggingaraðferðir, einkum torfhúsagerð. Með verklegri kennslu, rannsóknum og endurbyggingu friðaðra húsa tryggir skólinn að þessi sjaldgæfa handverkshefð haldist lifandi og skili sér til komandi kynslóða. Frá árinu 2007 hefur skólinn haldið um 50 námskeið með þátttöku um 500 nemenda, innlendra og erlendra. Kennsla hefur að stórum hluta farið fram á Tyrfingsstöðum í Skagafirði, þar sem söguleg hús hafa verið endurbyggð og nýtt sem lifandi kennslustofa.
Í umsögn dómnefndar segir: „Verkefnið tekst á við hnignun hefðbundinnar byggingarþekkingar í Evrópu með því að miðla henni áfram á lifandi og verklegan hátt. Það byggir á öflugu kennslulíkani milli kynslóða sem tryggir bæði varðveislu húsanna sjálfra og þeirrar þekkingar sem þarf til að halda þeim við. Verkefnið stendur á traustum grunni vandaðs handverks og nýtur styrks af alþjóðlegu og fræðilegu samstarfi, og er góð fyrirmynd fyrir varðveislu torfhúsaarfsins.“
Verðlaunahafar verða heiðraðir við hátíðlega athöfn í Nikósíu á Kýpur þann 28. maí. Almenningur getur jafnframt kosið sitt uppáhaldsverkefni í netkosningu, „Public Choice Award“, en sigurvegari þeirra hlýtur 10.000 evrur í verðlaun. Hægt er að greiða atkvæði til 12. maí.