Hólavallagarður friðlýstur
Jóhannes Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra staðfesti tillögu Minjastofnunar Íslands að friðlýsingu Hólavallagarðs við Suðurgötu í Reykjavík. Hólavallagarður endurspeglar á einstakan hátt skipulagssögu og uppbyggingu kirkjugarða á 19. og 20. öld.
Byrjað var að grafa í Hólavallagarði árið 1838. Garðurinn tók við af Víkurgarði og skipulag hans tók mið af skipulagi gamla kirkjugarðsins. Með tímanum varð að stækka garðinn og breyttist þá skipulag grafa og götur voru myndaðar milli grafaraða. Um það bil sem kirkjugarðurinn var fullnýttur var kominn nútímabragur á nýrri hluta hans meðan eldri hlutinn hefur verið látinn óhreyfður, ekki hafa verið skipulagðir stígar til að koma fyrir bekkjum o.fl. eins og oft má sjá í eldri kirkjugörðum annars staðar á Norðurlöndunum. Þessa sérstöðu Hólavallagarðs má vel greina á loftmyndum og þegar gengið er um garðinn kalla þær á hugrenningatengsl við skipulag 19. aldar borga í Evrópu frá þeim tíma þegar þær stækkuðu út fyrir borgarmúrana með nýju skipulagi gatna og lóða.
Önnur megin rök fyrir því að friðlýsa garðinn eru þau að í honum hefur varðveist eitt merkasta og heillegasta safn af minningarmörkum á Íslandi sem hafa mikið gildi fyrir listasögu, táknfræði og stílgerð. Þau gefa einnig gott yfirlit um þróun stílbrigða, handbragðs og efnisnotkunar frá 1838 til dagsins í dag. Í garðinum eru einstök minningarmörk, lágmyndir eftir þekkta listamenn, járnkrossar og girðingar sem eru mikilvæg sem fágæt sýnishorn handverks í evrópsku samhengi. Á Íslandi eru varðveitt hlutfallslega fleiri minningarmörk úr járni en erlendis, þar sem mörg þeirra hafa farið forgörðum af ýmsum ástæðum. Einnig má ætla að í garðinum sé að finna áhugaverðar upplýsingar um mismunandi gerðir og blöndun steinsteypu í gegnum árin, en það hefur enn ekki verið rannsakað.
Í garðinum er auk þess að finna fjölbreyttan gróður. Í eldrihluta garðsins eru trjátegundir sem eiga rætur sínar í garðyrkjutilraunum frá árunum milli stríða. Í öðrum hluta má sjá einkennandi gróður eftirstríðsáranna. Auk þess er þar fjölbreytilegur blómgróður sem á rætur að rekja til heimilisgarða á síðustu öld. Að minnsta kosti fjórar mosategundir sem fundist hafa í garðinum eru á Evrópuválista yfir plöntur í útrýmingarhættu. Eins eru þar nokkrar tegundir sveppa sem hvergi hafa fundist annars staðar á Íslandi. Vafalaust má segja að Hólavallagarður sé meðal fjölbreytilegustu skrúðgarða Reykjavíkur.