Fara í efni

Litlabæjarvör 4 á Álftanesi friðlýst

Að tillögu Minjastofnunar Íslands ákvað mennta- og menningarráðherra 3. nóvember s.l. að friðlýsa  íbúðarhúsið við Litlubæjarvör á Álftanesi í Garðabæ. Friðlýsingin tekur til ytra borðs hússins og frágangs gólfs, lofts og veggja í stofurými og miðjugangi innan dyra.


Húsið að Litlabæjarvör 4 á Áltfanesi var reist á árunum 1983 til 1985 eftir uppdráttum Guðna Pálssonar arkitekt sem jafnframt er eigandi hússins. Um húsið hefur verið fjallað í fjölmörgum fagtímaritum, innlendum sem erlendum, og það oft tekið sem dæmi um athyglisverða byggingarlist 9. áratugarins á Íslandi. Myndir og teikningar af húsinu eru í þeim tveimur leiðsöguritum sem gefin hafa verið út um íslenska byggingarlist. Þrjú önnur heimili merkra arkitekta hafa áður verið friðlýst af ráðherra: Tómasarhagi 31 í Reykjavík eftir Gísla Halldórsson, Smiðshús á Álftanesi eftir Manfreð Vilhjálmsson og Vesturbær á Álftanesi eftir Guðmund Kr. Kristinsson.