Minjaverndarviðurkenning 2026
Minjastofnun Íslands hefur ákveðið að veita Sigurbjörgu Árnadóttur árlega viðurkenningu stofnunarinnar fyrir frumkvöðlastarf í þágu minjaverndar. Viðurkenninguna hlýtur Sigurbjörg fyrir mikilvægt frumkvöðlastarf á sviði strandmenningar og varðveislu strandminja.
Sigurbjörg er einn stofnenda Vitafélagsins – íslensk strandmenning og hefur verið formaður þess frá upphafi árið 2003. Félagið hefur haft það að meginmarkmiði sínu að efla vitund Íslendinga um þau miklu menningarverðmæti sem liggja í og við strendur landsins, aðstoða við uppbyggingu strandmenningar, skapa tengsl og efla samstarf við frjáls félagasamtök á Norðurlöndum sem vinna að eflingu strandmenningar.
Sigurbjörg hefur verið burðarstólpinn í starfi félagsins og sannur eldhugi þegar kemur að málefnum strandminja á Íslandi.
Sigurbjörg tók virkan þátt í undirbúningi að fyrstu friðlýsingu vita á Íslandi en 7 slíkir voru friðlýstir í desember 2003. Vitafélagið undir stjórn Sigurbjargar og fyrir tilstilli hennar hefur síðastliðin 23 ár staðið að ýmiskonar viðburðum til að vekja athygli á strandminjum og strandmenningu sem einum mikilvægasta menningararfi þjóðarinnar. Yfir vetrarmánuðina eru haldnir mánaðarlegir fræðslufundir undir yfirskriftinni Spegill fortíðar – silfur framtíðar og á vorin er haldið vorþing í einhverjum sjávarbyggða landsins í samvinnu við heimamenn.
Sigurbjörg átti frumkvæði að og skipulagði fyrstu samnorrænu strandmenningarhátíðina sem haldin var á Húsavík árið 2011. Slíkar hátíðir hafa síðan verið haldnar víðsvegar um Norðurlöndin og eru allar norrænu þjóðirnar og sjálfstjórnarríkin virkir þátttakendur. Einn af ávöxtum samstarfsins er að 14. desember 2021 var handverk og hefðir við smíði og notkun súðbyrtra báta tekið á skrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) yfir óáþreifanlegan menningararf. Sigurbjörg tók að sjálfsögðu virkan þátt í gerð umsóknarinnar fyrir hönd íslenska súðbyrðingsins.
Sigurbjörg Árnadóttir var, fyrir hönd Vitafélagsins og í samstarfi við RÚV og Kvikmyndamiðstöðina, aðalframleiðandi heimildarmyndarinnar Ljósmál sem fjallar um vita landsins.
Sigurbjörg var sæmd fálkaorðu (riddarakrossi) 17. Júní 2026 fyrir störf í þágu íslenskrar þjóðmenningar.
Minjastofnun Íslands þakkar Sigurbjörgu Árnadóttur kærlega fyrir mikilvægt framlag til minjaverndar á Íslandi.