Fara í efni

NBM auglýsir eftir umsóknum um styrki

Norræni vinnuhópurinn um líffræðilega fjölbreytni, NBM, vinnur að því að stemma stigu við hnignun líffræðilegrar fjölbreytni á Norðurlöndum og tryggja með því að vistkerfin verði áfram öflug og veiti þá vistkerfaþjónustu sem nauðsynleg er fyrir velferð og hagvöxt.

NBM leggur höfuðáherslu á líffræðilega fjölbreytni, vistkerfi, náttúruvernd og sömuleiðis útivist, landslag, menningarumhverfi og vistkerfaþjónustu. Einnig að tryggja að líffræðilegri fjölbreytni og vistkerfaþjónustu sé veitt athygli í vinnunni sem snýr bæði að loftslagsaðlögun og loftslagsbreytingum. NBM starfar á grundvelli umhverfis- og loftslagsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar, einkum 5. kafla um líffræðilega fjölbreytni.

Áherslur við úthlutun styrkja árið 2023 eru, auk verkefna sem fjalla um líffræðilega fjölbreytni, sjálfbær neysla og sjálfbærir staðir. Þá er óskað eftir verkefnum sem auka þekkingu á umhverfis- og menningararfsglæpum á Norðurslóðum og áhrifum þeirra á líffræðilega fjölbreytni, vistkerfi og menningarminjar.

Umsóknarfrestur er til 24. maí 2022.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna hér:

Applications for funding in 2023 – biodiversity (norden.org)