Fara í efni

Nýútgefin rannsókn um samfélagslegt gildi minjastaða

Minjastofnun er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni (ESPON) sem snýr að því að rannsaka hvernig heimamenn sjá og meta minjastaði í sínu nánasta umhverfi.  Verkefnið er tvíþætt þar sem annars vegar er gerð rannsókn á samfélagslegu gildi minjastaða og hagrænu gildi hins vegar.  Fyrri hluta rannsóknarinnar, er snýr að samfélagslegu gildi minjastaða, er nú lokið og niðurstöður hafa verið gefnar út í skýrslunni: CASE STUDY //Societal value of cultural heritage in Iceland. Spin-off project of “ESPON HERITAGE”.  

Rannsóknin var unnin af Veru Vilhjálmsdóttur, sérfræðingi hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála, og við þökkum Veru og Rannsóknarmiðstöðinni fyrir afar gott og gefandi samstarf.

 

Orðaský sem birtist í skýrslunni og sýnir helstu orðin sem fólk nefndi í könnuninni þegar beðið var um það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar orðið minjastaður er nefnt.