Fara í efni

Um lífið í gömlu húsi - Fræðslufundur Húsverndarstofu

Húsverndarstofa býður til fræðslufundar í Lækjargötuhúsi á Árbæjarsafni, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 17-19 þar sem Bjarni Agnar Agnarsson, eigandi hússins að Tjarnargötu 22 í Reykjavík, mun fjalla um lífið í gömlu húsi. Húsið, sem var reist árið 1906 eftir uppdráttum Rögnvaldar Ólafssonar arkitekts, stendur enn í sinni upprunalegu mynd þökk sé góðu og reglulegu viðhaldi.
 
Skráning á viðburð fer fram hér. 
 
Húsið við Tjarnargötu 22 er eitt hinna glæsilegu timburhúsa í bárujárns-sveitserstíl sem standa við Tjörnina í Reykjavík. Húsið var reist fyrir Klemens Jónsson landritara, æðsta embættismann Stjórnarráðsins sem síðar varð bæði þingmaður og ráðherra. Húsið er enn í fjölskyldunni en núverandi eigandi þess er barnabarn Klemens, Bjarni Agnar Agnarsson. Á fundinum mun Bjarni Agnar fræða viðstadda um húsið sjálft, áhugaverða sögu þess auk þess að veita innsýn í lífið með gömlu friðlýstu húsi.

Fundinum verður streymt fyrir þau sem ekki komast á staðinn, sjá nánari upplýsingar hér.

Húsverndarstofa er fyrir húseigendur, iðnaðarmenn, arkitekta, námsmenn og allt áhugafólk um byggingarsögu og húsvernd. Að henni standa Iðan fræðslusetur, Minjastofnun Íslands og Borgarsögusafn Reykjavíkur.

Aðgengi:
Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Ef komið er með strætisvagni er stoppað við Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins og eru ókeypis.