Vesturbær Hafnarfjarðar verður að verndarsvæði í byggð
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest tillögu bæjarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar um að Vesturbær Hafnarfjarðar verði gerður að verndarsvæði í byggð. Um er að ræða merkan áfanga í vernd eldri byggðar, en Vesturbær Hafnarfjarðar er langstærsta verndarsvæði í byggð á Íslandi miðað við fjölda húsa.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Hér er verið að standa vörð um heilt hverfi, lifandi hluta bæjar – hverfi þar sem saga, mannlíf og daglegt líf hafa fléttast saman í meira en tvær aldir í sátt við þau sem hér búa. Með þessu sýna Hafnfirðingar framsýni, metnaði og stórhug gagnvart því að hlúa að eldri byggð, varðveita svipmót hennar, og gera samspili hennar við hraunið og staðaranda svæðisins hátt undir höfði.”
Nánari umfjöllun má finna á vef Stjórnarráðs Íslands hér.
Húsakönnun fyrir verndarsvæðið má finna hér.
Hvað er verndarsvæði í byggð? Kynningarmyndband Minjastofnunar Íslands má finna hér.