Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags
19. nóvember kl. 15:30-17:00
Almennir viðburðir
Þjóðminjasafn Íslands
Aðalfundur Hins íslenzka fornleifafélags 2026
verður haldinn fimmtudaginn 19. nóvember í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands kl. 15:30.
Dagskrá:
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Erindi
1. Hefðbundin aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Erindi
Kristborg Þórsdóttir, fornleifafræðingur á Fornleifastofnun Íslands, flytur erindi.
Eyðibyggðir á ystu annesjum. Niðurstöður fornleifaskráningar og nýjar uppgötvanir í Náttfaravíkum
Frá árinu 2018 til 2025 hefur Fornleifastofnun Íslands unnið heildstæða skráningu menningarminja í afskekktum eyðibyggðum á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Í erindinu mun stjórnandi verkefnisins kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar og fjalla um nýjar uppgötvanir í Náttfaravíkum sem varpa ljósi á elstu byggð á svæðinu og byggðaþróun.