Arkitektúr og Þingvellir
Jóhannes Þórðarson og Sigbjörn Kjartansson arkitektar hjá Glámu – Kími arkitektum fara yfir nýjar og eldri byggingar á Þingvöllum.
Gláma – Kím hefur komið að hönnun og byggingu tveggja gestastofa á Hakinu og þjónustuhúsa í og við þinghelgina auk mannvirkja sem stýra umferð um þjóðgarðinn, svo sem útsýnispalls á Hakinu og í Stekkjagjá. Þar fara saman stílhreinar byggingar sem eru ekki bara í sátt við umgjörðina sem náttúran hefur skapað heldur fagna henni um leið með stórum gluggum sem minna á síkvikt Kjarvalsmálverk.
Gláma – Kím kom einnig að endurgerð og endurhönnun Þingvallabæjarins sem þarfnaðist mikilla viðhaldsaðgerða. Sú vinna var unnin í nánu samráði við Minjastofnun og Forsætisráðuneytið enda byggingin og umhverfi hennar friðlýst. Gæta þurfti vandlega að viðkvæmri ásýnd og einstöku umhverfi. Bærinn var upphaflega byggður sem prestsseturshús á árunum 1929-30 eftir uppdráttum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins.