Fara í efni

Árlegur gestafyrirlestur

Þann 1. október fer fram árlegur gestafyrirlestur í fornleifafræði á vegum Félags fornleifafræðinga, Hins íslenzka fornleifafélags og Rannsóknarstofu í fornleifafræði við HÍ. Að þessu sinni mun David Griffiths prófessor frá University of Oxford og University of Highlands and Islands fjalla um nýstárlegar hugmyndir um hvernig landnám norræns fólks á N-Atlantshafinu hafi mögulega farið fram. Fyrirlesturinn fer fram kl 17:00 í stofu 201 í Odda (Háskóla Íslands) og er hann opinn öllum. Fyrirlestrinum verður einnig streymt á Zoom: Gestafyrirlestur

Viðburður á facebook: Viðburður