Fara í efni

Evrópskur herragarður í íslenskri sveit - málþing um Gunnarshús á Skriðuklaustri

Sunnudaginn 28. september kl. 14 verður haldið málþing á Skriðuklaustri í tilefni Menningarminjadaga Evrópu og 50 ára frá Evrópska húsverndarárinu 1975. Á málþinginu verður fjallað um Gunnarhús sem var byggt árið 1939 og friðlýst að ytra byrði árið 2008.

Dagskrá

  • Pétur Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri húsverndar hjá Minjastofnun Íslands, fjallar um húsið, arkitekt þess og byggingarsögulegt gildi.
  • Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, segir frá aðdraganda, byggingarframkvæmdum og seinni tíma sögusögnum.
  • Ólöf Sæunn Valgarðsdóttir, staðarhaldari á Skriðuklaustri, sýnir myndir af húsinu frá ýmsum tímum og byggingu þess.

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir en einnig verður streymt frá málþinginu á Youtube-rás Skriðuklausturs.

Meðfylgjandi ljósmynd er tekin af Einari Ástráðssyni sumarið 1940 og er frá Ljósmyndasafni Norðfjarðar.