Fara í efni

Hlaupið um arkitektúr

Í tilefni af alþjóðlegum degi arkitektúrs og Menningarminjadögum Evrópu býður Arkitektafélag Íslands upp á viðburðinn "Hlaupið um arkitektúr".
Hlaupið verður í gegnum opin græn svæði, nýja og eldri byggð þar sem við upplifum ólíka mælikvarða í nær og fjær umhverfi. Arkitektarnir Hildur Ýr Ottósdóttir og Valný Aðalsteinsdóttir eru skipuleggjendur hlaupsins og munu leiða hópinn á þægilegum hraða um 5 km leið ??️
 
Hlaupið verður frá Perlunni kl. 17:00, mánudaginn 6. október.
 
Við hvetjum að sjálfsögðu öll til að mæta og upplifa borgina á örlítið nýjan hátt!