Húsaveisla - 50 ára afmælisfögnuður evrópska byggingararfsársins
Dagskrá:
14:00-15:00 – Sérstök leiðsögn um húsin á safnsvæðinu út frá byggingarlegu sjónarmiði.
13:00-16:00 – Fjölskylduratleikur um hús Árbæjarsafns – Alma Sigurðardóttir, sérfræðingur í varðveislu bygginga.
13:00-16:00 – Opið í Húsverndarstofu: Ráðgjöf um endurgerð gamalla húsa – Bjarki Þór Wium Sveinsson, smiður og nemi í arkitektúr og Magnús Skúlason, arkitekt.
13:00-16:00 – Kynning á rannsóknum safnsins á sviði húsverndar – Drífa Kristín Þrastardóttir, verkefnastjóri húsverndar á Borgarsögusafni
13:00-16:00 – Hús í hæfum höndum: Hægt verður að fylgjast með smiði dytta að húsi.
Í ár eru 50 ár liðin frá Evrópska byggingararfsárinu 1975. Byggingararfsárið var mikil hvatning fyrir þau sem unnu að húsverndarmálum á Íslandi og segja má að það hafi markað þáttaskil í baráttu fyrir verndun byggingararfs eins og almennt er talið að hafið orðið í Evrópu.
Borgarsögusafn gegnir margþættu hlutverki á sviði húsverndar og varðveislu byggingararfs Reykjavíkur. Á Árbæjarsafni eru varðveitt hús með sögulegt og listrænt gildi sem endurspegla þróun byggðar og lífshætti í borginni. Safnið rannsakar einnig byggðasögu og byggingararf borgarinnar og heldur húsaskrá með upplýsingum um sögu og varðveislumat húsa í borginni. Afrakstur húsverndarrannsóknanna er birtur í byggða- og húsakönnunum sem eru gefnar út í skýrsluröð safnsins. Borgarsögusafn vinnur náið með Minjastofnun Íslands og Umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar að málum sem varða bæði húsvernd og fornleifavernd, skipulag og framkvæmdir í borginni.
Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld. Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.
Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur).
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins.
Öll bílastæði eru ókeypis.