Húsverndarstofa
18. mars - 24. júní
Almennir viðburðir
Sérfræðingar í viðhaldi á eldri húsum veita ráðgjöf á Árbæjarsafni alla miðvikudaga kl. 15-17 frá 1. febrúar til 30. nóvember. Einnig er boðið upp á símaráðgjöf í síma 411-6333. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið husverndarstofa@reykjavik.is.
Í Húsverndarstofu er hægt að leita ráðgjafar um hvernig best er að bera sig að áður en framkvæmdir hefjast, ræða um tæknilegar útfærslur, skoða litakort og bækur eða fræðast um byggingarsögu. Einnig er hægt að fá upplýsingar um styrki til framkvæmda.
Húsverndarstofa hefur aðsetur í Kjöthúsi á Árbæjarsafni og er rekin í samvinnu Borgarsögusafns, Minjastofnunar Íslands og Iðunnar fræðsluseturs. Nánar um húsverndarstofu hér.