Fara í efni

Hvaða sögu segja fornleifar Þingvalla

Þingvellir til forna: þinghald, búseta og mannlíf

Í göngunni, sem leidd verður af Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðingi, verður farið með gesti um Þingvelli. Fornleifar verða skoðaðar sem varpa ljósi á þinghald, búsetu og daglegt líf fólks á staðnum til forna.

Minjarnar geyma sögu þeirra sem dvöldu, störfuðu og bjuggu á Þingvöllum í gegnum aldirnar. Fjallað verður um það sem fornleifarnar hafa leitt í ljós, en einnig það sem enn er hulið.

Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannasakað og haldið utan um skráningu fornleifa á Þingvöllum í meira en áratug.
Gangan hefst klukkan 13:00 við gestastofu á Haki og tekur ríflega tvær klukkustundir.
Ókeypis er í gönguna, öll velkomin.
Gangan er hluti af menningarminjadögum Evrópu.