Fara í efni

Í veri: Heimilishald í verbúðum

Í veri: Heimilishald í verbúðum

Lilja Björk Brinks

Strandminjarannsóknir hafa fengið byr undir báða vængi undanfarin ár með áherslu Minjastofnunar Íslands á björgun minja í hættu vegna loftslagsbreytinga og tímabundnu, en þó afar mikilvægu, auknu fjármagni yfirvalda í Fornminjasjóð. Fjármagnið hefur leitt til þess að hægt var að hefja grunnrannsóknir í formi fornleifauppgrafta á strandminjum víða um land, og þar með veitt rannsakendum tækifæri til að kanna samfélög á verstöðum landsins í gegnum aldirnar. Afrakstur rannsóknanna sýna fram á að sá hópur sem dvaldi á þessum stöðum var langt því frá jafn einsleitur og áður hefur verið talið. Þetta á einnig við um húsin sem hafst var við í á vertíð. Það hefur verið mikill fjölbreytileiki í híbýlunum, ekki síst hvað varðar stærð og lögun þeirra. Þá hafa komið fram vísbendingar um annarskonar not húsanna en einvörðungu sem íverustaðar fyrir vermenn á vertíðum. Í þessum fyrirlestri verður stuðst við fornleifarannsóknir sem hafa orðið að veruleika vegna styrkja úr Fornminjasjóði. Án sjóðsins væru upplýsingarnar sem verður fjallað um horfnar í hafið og við værum litlu nær um líf fólks við strendur landsins til forna.

Fyrirlesturinn er hluti af Nýjar rannsóknir í fornleifafræði 2026, fyrirlestraröð Félags fornleifafræðinga og námsbrautar í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram miðvikudaginn 22. apríl kl. 12 í stofu 050 Í Aðalbyggingu Háskóla Íslands en einnig verður honum streymt á Zoom, hægt að fylgjast með hér: Fyrirlesturinn í streymi